Sykurpúða Rice Krispies með Bíókroppi

Rice Krispies Bitar (2)

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

1. Klæðið um 25 x 25 cm kökuform að innan með bökunarpappír og spreyjið næst með smá matarolíuspreyji svo auðveldara verði að ná kökunni úr til að skera hana í bita. 

2. Bræðið smjör í potti við vægan hita og blandið sykurpúðunum saman við. Hrærið þar til þeir hafa bráðnað saman við smjörið og loftkennd blanda myndast.

3. Takið af hellunni og hrærið Rice Krispies og Bíókroppi saman við.

4. Setjið nú blönduna yfir í kökuformið og þjappið niður með glasi/öðru með flötum botni, gott er að setja smá matarolíusprey á botninn svo hann klístrist síður við.

5. Þjappið niður eins og þið getið og sléttið úr toppnum, kælið síðan í um 30 mínútur áður en þið skerið í bita.

6. Bræðið suðusúkkulaðið og drisslið yfir eitt hornið og stingið einu Bíókroppi í miðjuna á því, látið storkna áður en þið njótið.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Sykurpúða hrískökur með Bíókroppi

16 stykki

● 60 g smjör

● 260 g mini sykurpúðar

● 140 g Rice Krispies

● ½ poki Bíókropp frá Nóa Síríus + meira til skrauts

● 50 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)

● Matarolíusprey